
Skjár tækisins speglaður þráðlaust á sjónvarpsskjá
Þú getur notað skjáspeglunareiginleikann til að sýna skjá tækisins á sjónvarpsskjá eða
öðrum stórum skjá án þess að tengja með snúru. Wi-Fi Direct™ tæknin kemur á
þráðlausri tengingu á milli tækjanna tveggja svo þú getur látið fara vel um þig og skoðað
uppáhaldsmyndirnar þínar í sófanum. Þú getur einnig notað þennan eiginleika til að hlusta
á tónlist úr tækinu í gegnum hátalara sjónvarpsins.
Þegar skjáspeglun er notuð getur dregið úr myndgæðum ef truflun frá öðrum Wi-Fi netkerfum
er fyrir hendi.
117
Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.

Skjár tækisins speglaður á sjónvarpsskjá
1
Sjónvarpið: Fylgdu leiðbeiningum í notendahandbókinni til að kveikja á
skjáspeglunareiginleikanum í sjónvarpinu.
2
Tækið þitt: Á Heimaskjár pikkarðu á .
3
Finndu og pikkaðu á
Stillingar > Tengingar tækis > Skjáspeglun.
4
Pikkaðu á
Byrja.
5
Pikkaðu á
Í lagi og veldu tæki.
Sjónvarpið verður að styðja skjáspeglun sem byggist á Wi-Fi CERTIFIED Miracast
™
til að
eiginleikinn virki. Ef sjónvarpið styður ekki skjáspeglun gætirðu þurft að kaupa þráðlaust
skjámillistykki sérstaklega. Ekki má heldur halda fyrir Wi-Fi loftnetssvæðið á tækinu þegar
skjáspeglun er notuð.
Skjáspeglun milli tækja stöðvuð
1
Á Heimaskjár pikkarðu á .
2
Finndu og pikkaðu á
Stillingar > Tengingar tækis > Skjáspeglun.
3
Pikkaðu á
Aftengja og síðan á Í lagi.