Texta breytt
Þú getur valið, klippt, afritað og límt texta þegar þú skrifar. Þú getur opnað
breytingarvalkostinn með því að tvísmella á textann sem búið er að slá inn.
Breytingarvalkostirnir verða til staðar í gegnum forritaslá.
Forritastika
Eftirfarandi aðgerðir eru í boði á völdum texta:
•
Klippa
•
Afrita
•
Líma
•
Samnýta
•
Velja allt
Valkosturinn
Líma birtist aðeins þegar texti er geymdur á klippiborðinu.
Texti valinn
1
Sláðu smá texta inn, tvípikkaðu síðan á textann. Orðið sem þú pikkar á merkist
með flipum á hvorum enda.
2
Dragðu flipana til vinstri eða hægri til að velja meiri texta.
Til að breyta texta
1
Sláðu smá texta inn, tvípikkaðu síðan á textann sem er sleginn inn til að láta
forritastikuna birtast.
2
Veldu textann sem þú vilt breyta og notaðu svo forritastikuna til að gera viðeigandi
breytingar.
Stækkari notaður
•
Þegar þú slærð inn texta pikkarðu á og heldur í textareitinn til að skoða stækkaðan
texta og til að setja bendilinn þar sem þú vilt innan textareitsins.
64
Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.