Sony Xperia Z3 Compact - Um þessa notandahandbók

background image

Um þessa notandahandbók

Þetta er

Xperia™ Z3 Compact notandahandbók fyrir Android™ 6.0

hugbúnaðarútgáfuna. Ef þú ert ekki viss um hvaða hugbúnaðarútgáfa er í tækinu geturðu

athugað það í stillingavalmyndinni.

Kerfis- og forritauppfærslur geta orðið til þess að eiginleikar tækisins líti öðruvísi út í tækinu en

lýst er í þessari notandahandbók. Android™-útgáfan verður hugsanlega ekki fyrir áhrifum við

uppfærslu. Frekari upplýsingar um hugbúnaðaruppfærslur er að finna í

Tækið uppfært

á

bls. 36.

Takmarkanir á þjónustu og eiginleikum

Hugsanlega eru þjónusta og eiginleikar sem lýst er í þessari notandahandbók ekki studd í

öllum löndum eða svæðum, í öllum kerfum eða hjá öllum þjónustuveitum. Alltaf er hægt

að nota alþjóðlegt neyðarnúmer GSM-símkerfisins í öllum löndum, á öllum svæðum, í

öllum kerfum og hjá öllum þjónustuveitum, að því gefnu að tækið sé tengt við

farsímakerfið. Hafðu samband við símafyrirtækið þitt til að athuga hvort tiltekin þjónusta

eða eiginleiki er í boði og hvort viðbótargjöld fyrir aðgang eða notkun eiga við.
Notkun sumra forrita og eiginleika sem lýst er í þessari handbók gæti krafist nettengingar.

Gagnatengingargjöld kunna að verða innheimt þegar þú tengir tækið við internetið.

Þjónustuveitan veitir frekari upplýsingar.

Núverandi útgáfa hugbúnaðar á tækinu þínu athugaður

1

Á Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Um símann > Android™-útgáfa.