Sony Xperia Z3 Compact - Viðhald gegnum tölvu

background image

Viðhald gegnum tölvu

Xperia™ Companion

Xperia™ Companion er hugbúnaðarþjónusta með safni af verkfærum og forritum sem þú

getur notað þegar þú tengir tækið þitt við tölvu. Með Xperia™ Companion getur þú:

Uppfært eða gert við hugbúnað tækinsins.

Flutt efni úr gömlu tæki með Xperia™ Transfer.

Tekið öryggisafrit og endurheimt efni í tölvunni.

Samstilltu margmiðlunarefni – myndir, myndskeið, tónlist og lagalista – á milli tækisins og

tölvu.

Skoðaðu skrár í tækinu þínu.
Til að nota Xperia™ Companion þarftu nettengda tölvu sem keyrir eitthvert af eftirfarandi

stýrikerfum:

Microsoft

®

Windows

®

7 eða nýrri

Mac OS

®

X 10.11 eða nýrri

Fáðu frekari upplýsingar og sæktu Xperia™ Companion fyrir Windows á

http://support.sonymobile.com/tools/xperia-companion/ eða Xperia™ Companion fyrir

Mac á http://support.sonymobile.com/tools/xperia-companion-mac/.

Umsjón með skrám í tölvu

Notaðu USB-snúrutengingu milli Windows

®

-tölvu og tækisins þíns til að flytja og vinna

með skrár.

37

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.

background image

Þegar tækin tvö eru tengd geturðu valið hvort þú vilt hlaða tækið, flytja skrár, nota það

sem orkugjafa eða nota það fyrir MIDI-ílag. Tölvan greinir tækið þegar þú velur

tengistillinguna

Skráaflutning (MTP). Sjálfgefin tengistilling er stillt á Hleðslu eingöngu.

Með Xperia™ Companion færðu aðgang að skráakerfi tækisins. Ef Xperia™ Companion

er ekki uppsett þarftu að setja það upp þegar þú tengir tækið við tölvuna.

Notaðu alltaf USB-snúru sem ætluð er fyrir þína gerð af Xperia™ og gættu þess að hún sé

alveg þurr.

USB-tengistillingar

Þú getur valið á milli tveggja USB-stillinga:

Skráarflutningur (MTP)

Notaðu MTP fyrir umsýslu með skrár, uppfærsluhugbúnað og tengingar um Wi-
Fi. Þessi USB-stilling er notuð á Microsoft

®

Windows

®

-tölvum. MTP er

sjálfgefið.

Gagnageymslustilling

(MSC)

Notaðu MSC fyrir umsýslu með skrár á MAC OS

®

og Linux tölvum sem ekki

styðja við MTP.

USB-tengiaðferð breytt

1

Tengdu USB-tengi við tækið þitt.

2

Dragðu stöðustikuna niður á við til að opna tilkynningasvæðið.

3

Tilkynning sýnir núgildandi tengingarstillingu,

USB hleður þetta tæki eða USB for

file transfer.

4

Pikkaðu á tilkynninguna og síðan á þá tengingarstillingu sem óskað er eftir.