Sony Xperia Z3 Compact - Geymsla og minni

background image

Geymsla og minni

Tækið er með nokkra mismunandi valkosti fyrir geymslu og minni.

Innri geymslan er u.þ.b.

12 GB og hún er notuð til að geyma sótt eða flutt efni ásamt

persónulegum stillingum og gögnum. Nokkur dæmi um gögn sem eru geymd á innri

geymslu eru vekjari, hljóðstyrkur og tungumálastillingar, tölvupóstur, bókamerki,

dagbókarviðburðir, myndir, myndskeið og tónlist.

Hægt er að nota laust minniskort sem er allt að

128 GB til að fá meira geymslupláss.

Hægt er að flytja efnisskrár og sum forrit (með gögnum sínum) í þessa tegund af minni til

að losa um pláss á innri geymslu. Sum forrit, t.d. myndavélaforritið, geta vistað gögn

beint á minniskortið.

Vinnsluminnið (RAM) er u.þ.b.

3 GB og ekki er hægt að nota það til geymslu.

Vinnsluminni er notað til að meðhöndla forrit sem verið er að keyra, sem og stýrikerfið.

Hugsanlega þarftu að kaupa minniskort sérstaklega.

Þú getur lesið meira um minnið í Android tækjum með því að sækja skjalið um tækið þitt á

www.sonymobile.com/support/

.

Afköst minnisins bætt

Minni tækisins á það til að fyllast við venjulega notkun. Ef tækið fer að hægja á sér eða

forrit lokast skyndilega skaltu hafa eftirfarandi í huga:

Það þarf alltaf að hafa meira en

100 MB af lausu plássi á innri geymslu og meira en 100

MB af vinnsluminni.

Lokaðu forritum sem þú ert ekki að nota.

Hreinsaðu skyndiminni fyrir öll forrit.

Fjarlægðu sótt forrit sem þú notar ekki.

Færðu forrit yfir í minniskortið ef innri geymslan er full.

Flyttu myndir, myndskeið og tónlist úr innra minni yfir á minniskortið.

Ef tækið getur ekki lesið efni á minniskortinu gætirðu þurft að forsníða kortið. Athugaðu

að öllu efninu á minniskortinu verður eytt þegar þú forsníður það.

Ef þú notar tæki með mörgum notendum verður þú að að skrá þig sem eiganda, það er,

aðalnotanda, til að framkvæma tilteknar aðgerðar, t.d. flytja gögn yfir á minniskortið og forsníða

minniskortið.

38

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.

background image

Staða minnis skoðuð

1

Á Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Geymsla.

Til að skoða hversu mikið laust og notað vinnsluminni er eftir

1

Á Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Forrit.

Skyndiminni fyrir öll forrit hreinsuð

1

Á Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Geymsla.

3

Pikkaðu á

Innri geymsla > Gögn í skyndiminni > Í lagi.

Þegar þú hreinsar skyndiminni missir þú ekki neinar mikilvægar upplýsingar eða stillingar.

Efnisskrár fluttar á minniskortið

1

Gakktu úr skugga um að minniskort sé í tækinu.

2

Á Heimaskjár pikkarðu á .

3

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Geymsla > Flytja gögn á SD-kort.

4

Merktu við skrátegundirnar sem þú vilt flytja yfir á minniskortið.

5

Pikkaðu á

Flytja.

Til að færa öpp yfir á minniskortið

1

Á Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Forrit.

3

Veldu appið sem þú vilt færa, pikkaðu síðan á

Geymsla, síðan undir

geymslunotkun pikkarðu á

Breyta > SD-kort > Færa.

Ekki er hægt að flytja sum öpp yfir á minniskortið.

Til að stöðva keyrslu forrita og þjónusta

1

Á Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Forrit.

3

Veldu forrit eða þjónustu og pikkaðu síðan á

STÖÐVA > Í lagi.

Minniskortið forsniðið

1

Á Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Geymsla.

3

Pikkaðu á

SD-kort, svo á og svo á Stillingar > Forsníða > Hreinsa og forsníða.

Öllu efninu á minniskortinu verður eytt þegar þú forsníður það. Gættu þess að þú eigir

öryggisafrit af öllum gögnum sem þú vilt vista áður en minniskortið er forsniðið. Til að búa til

öryggisafrit af efninu getur þú afritað það yfir á tölvu. Frekari upplýsingar má nálgast í

Umsjón

með skrám í tölvu

á bls. 37.