Sony Xperia Z3 Compact - Myndskeyðum breytt í myndskeiðaritilsforritinu

background image

Myndskeyðum breytt í myndskeiðaritilsforritinu

Þú getur breytt myndskeiðum sem þú hefur tekið með myndavélinni þinni. Til dæmis er

hægt að klippa myndskeið í viðkomandi lengd eða stilla hraða á því. Upphaflega

myndskeiðið geymist áfram í tækinu þegar þú hefur vistað breytta myndskeiðið.

110

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.

background image

Myndskeið klippt til

1

Finndu og pikkaðu á myndskeiðið sem þú vilt breyta í Albúmi.

2

Pikkaðu á skjáinn til að birta tækjastikurnar og pikkaðu svo á >

Skera.

3

Til að færa klippirammann til á tímalínunni styðurðu á jaðar rammans, dregur hann

þangað sem þú vilt hafa hann og pikkar á

Nota.

4

Til að vista afrit af klippta myndskeiðinu pikkarðu á

Vista.

Hraði myndskeiðs stilltur

1

Finndu og pikkaðu á myndskeiðið sem þú vilt spila í Albúmi.

2

Pikkaðu á skjáinn til að birta tækjastikurnar og pikkaðu svo á >

Hraði.

3

Veldu valkost, haltu jaðri tímalínunnar inni, dragðu hana þangað sem þú vilt hafa

hana og pikkaðu á

Nota.

4

Til að vista afrit af breytta myndskeiðinu pikkarðu á

Vista.

Til að taka mynd af myndskeiði

1

Finndu og pikkaðu á myndskeiðið sem þú vilt spila í Albúmi.

2

Pikkaðu á skjáinn til að birta tækjastikurnar og pikkaðu svo á >

Myndataka.

3

Til að færa staðsetningarmerkið til á tímalínunni styðurðu á það og dregur það

þangað sem þú vilt hafa það og pikkar á

Vista.