Sony Xperia Z3 Compact - Gagnanotkun stjórnað

background image

Gagnanotkun stjórnað

Þú getur fylgst með gagnamagninu sem er flutt í eða úr tækinu þínu í gegnum

gagnatenginguna eða Wi-Fi-tengingu á tilteknu tímabili. Þú getur til dæmis skoðað

gagnamagnið sem hvert forrit notar. Þú getur einnig stillt viðvaranir um gagnanotkun og

takmarkanir til þess að komast hjá aukagjaldi fyrir flutning gagna í gegnum gagnatenginu

farsímans.

Ef þú notar tækið með mörgum notendum, getur aðeins eigandinn eða aðalnotandinn

framkvæmt stillingar fyrir gagnanotkun. Stilling gagnanotkunar getur hjálpað þér að hafa meiri

stjórn á gagnanotkun en getur ekki komið í veg fyrir aukagjöld.

Kveikt eða slökkt á gagnaumferð

1

Á

Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Gagnanotkun.

3

Pikkaðu á sleðann við hliðina á

Farsímagagnaumferð til að kveikja eða slökkva á

gagnaumferð.

Þegar slökkt er á gagnaumferð getur tækið áfram komið á Wi-Fi- og Bluetooth®-tengingum.

Viðvörun um gagnanotkun stillt

1

Gakktu úr skugga um að kveikt sé á farsímagagnaumferð.

2

Á Heimaskjár pikkarðu á .

3

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Gagnanotkun.

4

Til að stilla viðvörunarstigið dregurðu viðvörunarlínuna á valið gildi. Þú færð

viðvörunartilkynningu þegar magn gagnaumferðar nálgast stigið sem þú hefur stillt.

47

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.

background image

Takmörk sett á notkun farsímagagna

1

Gakktu úr skugga um að kveikt sé á farsímagagnaumferð.

2

Á Heimaskjár pikkarðu á .

3

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Gagnanotkun.

4

Dragðu sleðann upp að

Stilla takmörkun gagnatenginga til hægri og pikkaðu á Í

lagi.

5

Dragðu gagnatakmörkunarlínuna á valið gildi til að stilla takmörk

farsímagagnanotkunar.

Þegar farsímagagnanotkun nær stilltu takmarki er sjálfkrafa slökkt á henni.

Gagnanotkun sérstakra forrita stýrt

1

Á Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Gagnanotkun.

3

Pikkaðu á forritið sem þú vilt stýra og dragðu svo sleðinn upp að

Takmarka

bakgrunnsuppl. forrits til hægri og pikkaðu á Í lagi.

4

Til að fá aðgang að sérstakari stillingum fyrir forritið (ef þær eru til staðar) pikkarðu

á

Forritsstillingar og gerir viðeigandi breytingar.

Ef þú breytir stillingum fyrir gagnanotkun getur það haft áhrif á vinnslu einstakra forrita.

Gagnanotkun þín könnuð

1

Á Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Gagnanotkun.

3

Pikkaðu á og svo á

Sýna Wi‑Fi.

4

Til að skoða upplýsingar um það gagnamagn sem flutt er um Wi-Fi er pikkað áWi-

Fi flipann.

5

Til að skoða upplýsingar um það gagnamagn sem flutt er um

farsímagagnatengingu pikkarðu á

Farsími flipann.