Sony Xperia Z3 Compact - Hávaðasía

background image

Hávaðasía

Tækið styður höfuðtól með hávaðasíu. Ef þú notar höfuðtól með hávaðasíu færðu mun

skýrari hljómgæði, t.d. þegar þú hlustar á tónlist í háværu umhverfi, t.d. um borð í

strætisvagni, lest eða flugvél. Einnig geturðu notað þennan eiginleika til að skapa hljóðlátt

umhverfi til að læra, vinna eða lesa í.

Til að tryggja hámarksframmistöðu mælum við með höfuðtólum með hávaðasíu frá Sony.

Notkun höfuðtóla með hávaðasíu

1

Tengdu höfuðtól með hávaðasíu við tækið.

2

Á heimaskjánum pikkarðu á >

Stillingar > Hljóð og tilkynning > Stillingar

aukahluta > Draga úr hávaða, dregur síðan sleðann til hægri sem er við hliðina á

Draga úr hávaða.

3

Ef þú vilt að einungis sé kveikt á

Draga úr hávaða á meðan tónlist eða myndskeið

er spilað eða þegar skjárinn er virkur skaltu draga sleðinn upp að

Orkusparnaðarstilling til hægri.

4

Ef þú vilt að kveikt sé á

Draga úr hávaða alltaf þegar heyrnartólin eru tengd skaltu

draga sleðann upp að

Orkusparnaðarstilling til vinstri.

Ekki er víst að höfuðtól með hávaðasíu fylgi með þegar þú kaupir tækið.

Stillingum breytt í samræmi við hljóðumhverfi

1

Gættu þess að höfuðtól sem útiloka hávaða séu tengd við tækið.

2

Á heimaskjánum pikkarðu á .

3

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Hljóð og tilkynning > Stillingar aukahluta >

Draga úr hávaða > Hljóðumhverfi.

4

Veldu viðeigandi tegund hljóðumhverfis, pikkaðu síðan á

Í lagi.